YouVersion Logo
Search Icon

Markúsarguðspjall 1

1
Upphaf
1Upphaf fagnaðarerindisins um Jesú Krist, Guðs son.#1.1 Orðin „Guðs son“ vantar í sum handrit. 2Svo er ritað hjá Jesaja spámanni:
Ég sendi sendiboða minn á undan þér,
hann á að greiða þér veg.
3Rödd hrópanda í eyðimörk:
Greiðið veg Drottins,
gerið beinar brautir hans.
4Þannig kom Jóhannes skírari fram í óbyggðinni og boðaði mönnum að taka sinnaskiptum og láta skírast til fyrirgefningar synda 5og menn streymdu til hans frá allri Júdeubyggð og allir Jerúsalembúar og létu hann skíra sig í ánni Jórdan og játuðu syndir sínar.
6En Jóhannes var í klæðum úr úlfaldahári, með leðurbelti um lendar sér og át engisprettur og villihunang. 7Hann prédikaði svo: „Sá kemur eftir mig sem mér er máttugri og er ég ekki verður þess að krjúpa niður og leysa skóþveng hans. 8Ég hef skírt ykkur með vatni en hann mun skíra ykkur með heilögum anda.“
Skírn og freisting
9Svo bar við á þeim dögum að Jesús kom frá Nasaret í Galíleu og Jóhannes skírði hann í Jórdan. 10Um leið og hann sté upp úr vatninu sá hann himnana ljúkast upp og andann stíga niður yfir sig eins og dúfu. 11Og rödd kom af himnum: „Þú ert minn elskaði sonur, á þér hef ég velþóknun.“
12Þá knúði andinn hann út í óbyggðina 13og var hann í óbyggðinni fjörutíu daga og Satan freistaði hans. Hann hafðist við meðal villidýra og englar þjónuðu honum.
Guðs ríki í nánd
14Þegar Jóhannes hafði verið tekinn höndum kom Jesús til Galíleu, prédikaði fagnaðarerindi Guðs 15og sagði: „Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Takið sinnaskiptum og trúið fagnaðarerindinu.“
Fyrstu lærisveinar
16Jesús var á gangi með fram Galíleuvatni og sá Símon og Andrés, bróður Símonar, vera að kasta netum í vatnið en þeir voru fiskimenn. 17Jesús sagði við þá: „Komið og fylgið mér og mun ég láta ykkur menn veiða.“ 18Og þegar í stað létu þeir eftir netin og fylgdu honum.
19Jesús gekk skammt þaðan og sá Jakob Sebedeusson og Jóhannes, bróður hans, og voru þeir einnig á báti að búa net. 20Jesús kallaði þá og þeir yfirgáfu Sebedeus föður sinn hjá daglaunamönnunum í bátnum og fylgdu honum.
Í Kapernaúm
21Þeir komu til Kapernaúm. Og hvíldardaginn gekk Jesús í samkunduna og kenndi. 22Menn urðu mjög snortnir af orðum hans því að hann kenndi þeim eins og sá er vald hefur og ekki eins og fræðimennirnir.
23Þar var í samkundu þeirra maður haldinn óhreinum anda. Hann æpti: 24„Hvað vilt þú okkur, Jesús frá Nasaret? Ert þú kominn að tortíma okkur? Ég veit hver þú ert, hinn heilagi Guðs.“
25Jesús hastaði þá á hann og mælti: „Þegi þú og far út af honum.“
26Þá teygði óhreini andinn manninn, rak upp hljóð mikið og fór út af honum. 27Sló felmtri á alla og hver spurði annan: „Hvað er þetta? Hann kennir á nýjan hátt. Það er eins og hann búi yfir guðlegum mætti! Hann skipar jafnvel óhreinum öndum og þeir hlýða honum.“ 28Og orðstír hans barst þegar um alla Galíleu.
Jesús læknar
29Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. 30Tengdamóðir Símonar lá með sótthita og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. 31Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni og hún gekk þeim fyrir beina.
32Þegar kvöld var komið og sólin sest færðu menn til hans alla þá er sjúkir voru og haldnir illum öndum 33og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. 34Jesús læknaði marga er þjáðust af ýmsum sjúkdómum og rak út marga illa anda en illu öndunum bannaði hann að tala því að þeir vissu hver hann var.
Jesús prédikar í Galíleu
35Og árla, löngu fyrir dögun, fór Jesús á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir. 36Þeir Símon leituðu hann uppi 37og þegar þeir fundu hann sögðu þeir við hann: „Allir eru að leita að þér.“
38Jesús sagði við þá: „Við skulum fara annað, í þorpin hér í grennd, svo að ég geti einnig prédikað þar því að til þess er ég kominn.“
39Og hann fór og prédikaði í samkundum þeirra í allri Galíleu og rak út illa anda.
Verð þú hreinn!
40Maður nokkur líkþrár kom til Jesú, féll á kné og bað hann: „Ef þú vilt getur þú hreinsað mig.“#1.40 Líkþráir eða holdsveikir menn voru útilokaðir frá mannlegu samfélagi og öllu helgihaldi í musterinu og samkundum vegna sjúkdóms síns.
41Og Jesús kenndi í brjósti um manninn,#1.41 Annar lesháttur: reiddist. rétti út höndina, snart hann og mælti: „Ég vil, verð þú hreinn!“ 42Jafnskjótt hvarf af honum líkþráin og hann varð hreinn. 43Og Jesús lét hann fara, lagði ríkt á við hann 44og sagði: „Gæt þess að segja engum neitt en far þú, sýn þig prestinum og fórna fyrir hreinsun þína því sem Móse bauð þeim til vitnisburðar.“
45En maðurinn gekk burt og ræddi margt um þetta og víðfrægði mjög svo að Jesús gat ekki framar komið opinberlega í neina borg heldur hafðist við úti á óbyggðum stöðum. En menn komu til hans hvaðanæva.

Highlight

Share

Copy

None

Want to have your highlights saved across all your devices? Sign up or sign in

YouVersion uses cookies to personalize your experience. By using our website, you accept our use of cookies as described in our Privacy Policy